Catalyzing Conscious Leadership
"With mindfulness each moment of your life is a jewel."

Thich Nhat Hanh
  Home   Programs    Contact
Skerpið Samkiptahæfnina
Fjögur heillavænleg úrræði til aukins árangurs í mannlegum samskiptum

Hver þekkir ekki þá líðan að koma engu í verk og þjást af orkuleysi og kvíða hvort tveggja í einkalífi og starfi?  Svo virðist sem okkur sé gjörsamlega ósýnt um að koma nokkru í verk, viðleitni okkar missir marks og við erum eins og firrt allri djörfung og gleði. Það er sinnuleysi af þessu tagi, sem hindrar okkur í því að koma auga á viðunandi lausnir til að hrinda áformum okkar í framkvæmd eða leiða þau til lykta og ná settum markmiðum. Og þá eru ótaldir jafn sjálfsagðir hlutir og að eiga ánægjuleg og árangursrík samskipti við samstarfsmenn og fjölskyldu.

Í því skyni að varpa ljósi á þetta fyrirbæri munum við skoða mismunandi viðbragðsvenjur fólks og hvernig þær móta jafnan sexþætta ólíka svörun við sama atburðinum, sem útskýrir margbreytilegt háttalag og hegðun manneskjunnar og hverju sú hegðun fær jafnan til leiðar komið. Stefnt er að því að öðlast grunnþekkingu á þeim fyrirbærum sem við nefnum vitsmunastöðina, tilfinningastöðina og hreyfistöðina, þ.e. þær megin atferlis- og samskiptastöðvar er stjórna hugsunum okkar, tilfinningum og athöfnum. Skortur á færni til áskjósanlegrar notkunar þessara stöðva verður okkur sífellt fótakefli er við fáumst við okkur sjálf eða í samskiptum við aðra og orsakar oft og tíðum streitu og árekstra í stað heilbrigðrar samvinnu og skapandi andrúmslofts. Að lokum munum við taka til meðferðar fjögur mikilvæg úrræði til árangursríkra samskipta.

Það er þýðingarmikið fyrir alla þá sem stefna vilja að framförum og vexti í lífi og starfi, að búa yfir þekkingu á þessum samskiptavenjum okkar, hvers eðlis þær eru og hvernig við beitum þeim

Lærið að glöggva ykkur á og komast til botns í samskiptavenjum ykkar og tileinka ykkur leiðir til þess að færa þær til betri vegar og nýta með jákvæðum hætti, í eigin þágu og annarra.


Markmiðið með þjálfuninni er að …

•    Bera kennsl á hindranir í lífi okkar og starfi
•    Skoða mismunandi samskiptavenjur fólks
•    Læra um ólíkar atferlis-og samskiptastöðvar okkar
•   
Losa um streitu og vinna gegn kvíða
•    Rækta með sér skilning á sjálfum sér og samferðafólki sínu
•    Efla hæfni til samskipta og samvinnu


Umsögn:

“Frábært námskeið og leiðbeinandi.  Lífleg framsetning, ganglegt og skemmtilegt."

- Kristín Jónsdóttir, Endurmenntun Háskóla Íslands


"Ég naut einlægni kennarans, skýrleika og húmors.  Rúna segir skemmtilega frá.
"

- Steinunn Þórhallsdóttir, Endurmenntun Háskóla Íslands


“Ég kynntist Rúnu á þingi WIN (Women´s International Networking) í Osló, í september árið 2007. Hún hjálpaði mér að glöggva mig á ýmsum þeim farartálmum sem stóðu mér fyrir þrifum í starfi og einkalífi og lagði mér til hvort tveggja leiðir og aðferðafræði til að yfirstíga þá. Námskeið hennar var haganlega skipulagt og nærvera hennar mögnuð. Sannarlega sjálfri sér samkvæm og uppörfandi kennari”

- Kristen Davis, International Herald Tribune, París


“Athyglisverð og skemmtileg framsetning, blanda af hreyfingu, fyrirlestri og tónlist, og áherslu á einlæga hlustun, fara inn á við og læra að skilja aðra."

- Hulda Mjöll Hauksdóttir, Endurmenntun Háskóla Íslands


“Mæli með þessu námskeiði."

- Árelía Eydís Guðmundsdóttir, lektor, viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands


































 
Rúnora, LLC. Conscious Leadership Consulting  

Home | Programs | Contact
About us | What We Do | Clients | Interviews | Upcoming Events | Resources

© Copyright 2006 Rúnora, LLC.
Web site designed by Glazer and Kalayjian, Inc.